25/11/2025

Áfangastaðurinn er hannaður í samvinnu Landslags, Gagaríns og Irmu.
Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi með áherslu á áhrif þeirra á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni. Hönnunarverðlaun Íslands beina sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi um leið og einstaka hönnuðum eða hópum hönnuða er veitt mikilvæg viðurkenning.
Rökstuðningur dómnefndar
Á Þrístöpum hefur tekist einkar vel að búa gestum eftirminnilega upplifun. Saga, umhverfi og hönnun vinna saman og þjóna viðfangsefni sínu á áhrifaríkan en látlausan hátt.
Til baka