Landslag

Verkefni > Almenningsrými

Elliðaárstöð

Elliðaárstöð í Elliðaárdal.

Höfundar:

TERTA og Landslag ásamt Hnit Verkfræðistofu og Ljósark

 

Staður ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands 2025

Tilnefnt til Mies van der Rohe verðlaunanna í arkitektúr 2026

 

 

Elliðaárstöð er nýr áfangastaður í hjarta Elliðaárdalsins. Svæðið er hannað af Tertu þverfalegu hönnunarteymi í samstarfi við Landslag fyrir Orkuveitu Reykjavíkur.

Elliðaárstöð hefur verið endurhönnuð sem spennandi áfangastaður með almenningsrýmum, gestastofu og veitingastað. Svæðið iðar nú af lífi árið um kring en var áður afvikið iðnaðarsvæði. Með endurhönnun á svæðinu hefur gömlum byggingum verið gefið nýtt hlutverk. Útisvæðið fléttast fallega saman við starfsemina með einstöku leiksvæði, viðburðasvæðum, gönguleiðum og innsetningum.

Svæðið er hannað með fræðslu, samveru, útiveru og leik í huga. Þar má fræðast um sögu staðarins, orkuna í náttúrunni og veiturnar, jafnt úti sem inni. Í Elliðaárstöð má hanga, sulla, slaka á, hitta vini, sækja viðburði en þar er líka tekið á móti fjölda skólahópa. Alla þessa þætti þurfti hönnunarteymið að hafa í huga við hönnun og útfærslu á staðnum auk samstarfs við ólíka aðila. Hönnunarhugsun, sem tekur mið af stóra samhenginu, skín í gegn ásamt nákvæmri og vandaðri útfærslu smáatriða.

Í hönnun staðarins er lagt upp með að dylja hvergi afnot manneskjunnar af auðlindum heldur þvert á móti undirstrika jákvætt samlíf manns og náttúru. Áhersla er lögð á að nýta það sem fyrir var á svæðinu til fulls og sækja innblástur í sögu dalsins. Hlusta á staðinn og vinna þaðan.

Við endurnýjun húsanna var leitað í uppruna þeirra varðandi efnisnotkun, innréttingar og fyrirkomulag. Ummerki gamalla veggja eru sýnileg og síðari tíma breytingar fjarlægðar þar sem við átti. Efniviður sem féll til var endurnýttur í ný gólf eða yfirborðsefni og saga húsanna gegnum árin gerð læsileg sem tekst sérstaklega vel þar sem lagnir inni í veggjum og undir götum verða sýnilegar.

Ár

2018-2024

Verkkaupi

Orkuveita Reykjavíkur

Framkvæmd

Lokið