Urriðaholt - skipulag
Hönnuðir: Landslag ehf.
Skipulag Urriðaholts í Garðabæ hlaut 2. sætið í lokaúrslitum alþjóðlegu lífsgæðaverðlaunanna, LivCom, sem afhent voru í London í nóvember 2007.
LivCom verðlaunin eru veitt með stuðningi Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna og eru einu verðlaun sinnar tegundar í heiminum. Þau hafa verið veitt árlega frá 1997 og er markmið þeirra að auka lífsgæði íbúa í borgarsamfélögum. Um leið eru þau vettvangur fyrir miðlun hugmynda og upplýsinga á þessu sviði.
Rúmlega 50 lönd taka að jafnaði þátt í samkeppni um LivCom verðlaunin, en þau eru veitt í þremur flokkum.










